Entry: Spili, spili, spili... Tuesday, October 31, 2006



Jebbs gott fólk ég spila eitthvað smá á næstunni og hér er það sem stendur upp úr:

Tónleikar annað kvöld á Rosenberg, Lækjargötu, Reykjavík. Þar mun ég spila mitt eigið efni í bland við nokkur af mínum uppáhalds lögum. Byrja klukkan 22:00 og það er frítt inn! Komdu og vertu memm.
=--------------------------=
Norðfirðingar
og nærsveitamenn. Fjáröflunarkvöld Radio Dich Milch verður í Egilsbúð, Föstudaginn 10.nóvember. Það kostar skitinn þússara inn og í staðinn kemstu á klikkaðasta ball Dich Milch fyrr og síðar, því get ég lofað!
Mættu á staðinn og sjáðu það í eigin persónu sem allir verða að tala um mánudaginn eftir. Í leiðinni ertu að styrkja útvarpið sem mun rokka fyrir þig næstu jól og áramót.

   3 comments

Laufey
November 3, 2006   10:09 AM PST
 
Ánægð með þig félagi!
Gamla konan er nebblega að fara að gifta sig í sumar... ;)
Verð í bandi!
Hlynur Ben
November 2, 2006   07:27 AM PST
 
3 vikur er venjulegtur standard en bjallaðu bara í mig og sjáum hvað við getum gert :) Maður hagræðir nú fyrir DM-meðlimi :)
Laufey
November 1, 2006   08:14 PM PST
 
Ég mæti sko í feitu stuði um áramótin! Líst vel á þetta hjá ykkur!
Heyrðu Hlynur.... Hvað þarf maður að bóka þig með löngum fyrirvara, elsku kallinn? :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments