|
Gærkvöldið var alveg frábært og vil ég þakka öllum sem komu og skemmtu sér með okkur. Frábær mæting, geggjuð stemmning og síðast en ekki síðst góðir listamenn. Þegar liðið var á kvöldið gekk goðið inn. Ég kýs að kalla hann Hebba Gúmm en flestir þekkja hann sem Herbert Guðmundsson. Valdi kallar hann kónginn! Hann söng nokkur vel valinn lög fyrir fólkið en þegar hann kom baksviðs þá sagði ég honum að hann slyppi ekki svo auðveldlega. Hann átti eftir að syngja Can't walk away. Hann sagði:"Ungi maður, það er ómögulegt að spila þetta lag eingöngu á kassagítar." Valdi var þarna með mér og ég sá glampann í augunum á honum þegar hann barði goðið augum. Ég leit á Hebba og sagði:"Dich Milch eru þekktir fyrir allt annað en uppgjöf!" Ég reif hann fram á svið og við fluttum Can't walk away í góðra vina hópi. Hebbi Gúmm er nú Dich Milch fan numero uno! Takk fyrir snilldar helgi krakkar mínir.

|