ÖLLUM ER SAMA HVAÐ MÉR FINNST
OG MÉR ER SAMA HVAÐ ÖLLUM ÖÐRUM FINNST
VIRKAR FÍNT



   


<< September 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


GIGG

Föst 10.nóv
Egilsbúð
(Dich Milch)

kl:00:00 - 03:00
1000kr inn


Lau 11.nóv
Svarthvíta hetjan
(Dich Milch)


Fim 16.nóv
Glaumbar


Lau 18.nóv
Pöbbinn á Vík



MYSPACE

Hlynur Ben

Búálfar

BLOGG

Aldís

Berglind

Heiða

Vigga

Hilmar Garðars

Doddi

Orko

Trýtilbuxi

Ólafur Arnar

Birta

Karen

Knúturinn

Dich Milch

He-Man og Adolf

ÚTVARP Á NETINU

RÁS 2

Flass 104,5

X-FM

TÓNLIST

Midi.is
Hér færðu miða á tónleika

Poppland
Tónlistarfréttir og meira

Músík.is
Íslenskir vefir sem tengjast tónlist

Rokk.is
Íslensk mp3 síða


GÍTARSÍÐUR

Harmony Central

Chord Book

Music Theory


TEXTAR OG HLJÓMAR

Snerpa

Söngtextasíða Jómma

Söngtextasíða Davíðs

FRÉTTIR

Mogginn

Visir

CNN

BBC

LEITARVÉLAR

Google

Leit

Yahoo

GAMAN

Strongbad
Svarar e-mail

Weebl and Bob
Snillingar

Garfield
Saga á dag...

Calvin and Hobbes
...kemur skapinu í lag

Baggalútur

Holy Lemon

Happy Tree Friends

Glaumbar

Sendu mér póst:
bualfar@hotmail.com




If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


blogdrive

Tuesday, November 14, 2006
blogg-færsla!

Ég er farinn yfir á http://blog.central.is/hlynurben en þið getið alltaf skoðað gömlu bloggfærslurnar hér.


Posted at 01:03 pm by hlynurben
Make a comment

Thursday, November 09, 2006
Radio Dich Milch!

Tónleikar til styrktar bestu útvarpsstöðvar í heimi, RADIO DICH MILCH, verður föstudagskveldið 10.nóvember.
DICH MILCH eins og þú hefur ALDREI séð þá áður!

1000kr inn (það er ekki neitt!)
ALLT FOKKING CRAAAAZY!

MIÐNÆTTI
fólk
MIÐNÆTTI

!


Posted at 09:32 am by hlynurben
Make a comment

Tuesday, November 07, 2006
Borat


Það er svooo margt siðferðislega rangt við þessa mynd en hún er skyldu áhorf því hún fær mann til þess að hugsa líka.
Skelltu þér á Borat!

e.s. Valdi þú verður að sjá þessa!


Posted at 07:11 am by hlynurben
Make a comment

Thursday, November 02, 2006
Kosningaloforð dagsins!


Kjósið mig og ég mun sjá til þess að fólk sem klæðist þessum ógeðslegu hjólreiðabuxum á almannafæri verði rekið úr landi!
Þessi sjónmengun hefur mengað land okkar allt of lengi og ég lofa að ef þið kjósið mig þá verður aftur óhætt að ganga um göturnar!


Posted at 09:28 am by hlynurben
Make a comment

Tuesday, October 31, 2006
Spili, spili, spili...

Jebbs gott fólk ég spila eitthvað smá á næstunni og hér er það sem stendur upp úr:

Tónleikar annað kvöld á Rosenberg, Lækjargötu, Reykjavík. Þar mun ég spila mitt eigið efni í bland við nokkur af mínum uppáhalds lögum. Byrja klukkan 22:00 og það er frítt inn! Komdu og vertu memm.
=--------------------------=
Norðfirðingar
og nærsveitamenn. Fjáröflunarkvöld Radio Dich Milch verður í Egilsbúð, Föstudaginn 10.nóvember. Það kostar skitinn þússara inn og í staðinn kemstu á klikkaðasta ball Dich Milch fyrr og síðar, því get ég lofað!
Mættu á staðinn og sjáðu það í eigin persónu sem allir verða að tala um mánudaginn eftir. Í leiðinni ertu að styrkja útvarpið sem mun rokka fyrir þig næstu jól og áramót.


Posted at 12:56 pm by hlynurben
Comments (3)

Friday, October 20, 2006
Fréttatilkynning!

Við Dich Milch vorum að enda við að loka stórum samningi í samstarfi við Egilsbúð og Skonsugerðar Fjarðabyggðar. Við munum slá upp klikkuðu djammi í Egilsbúð um áramótin!

Já gott fólk DICH MILCH, betri og rokkaðri en nokkru sinni fyrr á áramótaballi í Egilsbúð, Neskaupstað. Stjörnuprýtt kvöld.

Einnig munum við opna útvarpsstöðina RADIO DICH MILCH þann 22.des til að skemmta lýðnum yfir hátíðirnar og hita fólk fyrir áramótagleðina miklu.

Við erum menn fólksins og berum hag ykkar fyrir brjósti!
Við erum til svo að þið skemmtið ykkur vel!
VIÐ ERUM DICH MILCH!


Posted at 10:30 am by hlynurben
Comments (2)

Tuesday, October 17, 2006
Airwaves!

Ég er kominn með kunnulegann skjálfta í eyrun!
Eftirvæntingin er gríðarleg!

Airwaves er að byrja og ég á armband. Ég nenni ekki að tíunda hvað ég ætla að sjá, bara að ég ætla með góðu fólki á góða tónleika og munið að Lay Low diskurinn kemur út á morgun!

http://www.icelandairwaves.is


Posted at 01:49 pm by hlynurben
Comments (4)

Monday, October 16, 2006
Safamýrin!

Já það hefur verið nóg að gera undanfarið að flytja á Safamýrina. Ég og Kobbi höfum komið okkur vel fyrir og framtíðin virðist bara björt. Við höfum fengið einn næturgest til okkar og sorglegt en satt þá var það ekki kvendi. Þar var á ferð Gissur sem var í ókunnum erendagjörðum hér í borg óttans. Við erum netlausir í íbúðinni og þess vegna hefur bloggið legið niðri en það er nú komið í gang sem aldrei fyrr og á föstudaginn næstkomandi mun koma massív fréttatilkynning svo það er um að gera að fylgjast með.


Fréttatilkynning á föstudaginn!


Posted at 01:52 pm by hlynurben
Make a comment

Thursday, October 12, 2006
Fix

Það hrekkur allt í gang mánudaginn 16.október. Það er búið að vera eitthvað bras á þessu bloggi en það kemur eftir helgi. Þá getiði lesið nægju ykkar.
Það verður stór fréttatilkynning hér í næstu viku svo fylgist með!


Posted at 01:36 pm by hlynurben
Comments (5)

Sunday, October 01, 2006
Can't walk away...

Gærkvöldið var alveg frábært og vil ég þakka öllum sem komu og skemmtu sér með okkur. Frábær mæting, geggjuð stemmning og síðast en ekki síðst góðir listamenn. Þegar liðið var á kvöldið gekk goðið inn. Ég kýs að kalla hann Hebba Gúmm en flestir þekkja hann sem Herbert Guðmundsson.
Valdi kallar hann kónginn!
Hann söng nokkur vel valinn lög fyrir fólkið en þegar hann kom baksviðs þá sagði ég honum að hann slyppi ekki svo auðveldlega. Hann átti eftir að syngja Can't walk away. Hann sagði:"Ungi maður, það er ómögulegt að spila þetta lag eingöngu á kassagítar." Valdi var þarna með mér og ég sá glampann í augunum á honum þegar hann barði goðið augum. Ég leit á Hebba og sagði:"Dich Milch eru þekktir fyrir allt annað en uppgjöf!" Ég reif hann fram á svið og við fluttum Can't walk away í góðra vina hópi.
Hebbi Gúmm er nú Dich Milch fan numero uno!
Takk fyrir snilldar helgi krakkar mínir.




Posted at 01:48 pm by hlynurben
Make a comment

Next Page