Saturday, September 30, 2006
Safmýri, Sólbrekka og allt þar á milli!
Ómar Ragnarsson hefur loksins tapað glórunni. Karlanginn búinn að kaupa sér örk(árabát) og fylla hana af mold, steinum, dauðum plöntum og einum dauðum fugl sem er táknrænt fyrir það landsvæði sem verið er að drepa með flóðinu mikla á Kárahnjúkum. Ég og móðir mín horfðum á þennann áður-fyrr-fyndna en nú-bara-leiðinlega mann í fréttum í gærkveldi og mamma komst vel að orði:"Aumingja konan hans!"
Árni Johnsen fékk syndaaflausn og uppreisn æru frá góðvini sínum Geir H. Haarde (hvað ætli H-ið standi fyrir?) og ætlar að bjóða sig fram á þing. Sjálfsagt verður þessi lúmski eiginhagsmunaseggur kosinn inn á Alþingi okkar skersbúa og þá verður mér endanlega öllum lokið. Ég skora á ALLA sem eru á sakaskrá að sækja um uppreisn æru því þarna er komið fordæmi sem ætti að bjarga hinum syndugu íslendingunum sem hafa bætt ráð sitt.
Reyndar lenti ég næstum því á sakaskrá fyrir garðálfastuld en það er saga sem verður að bíða betri tíma.
Það var frábært að spila á Sólbrekku í Mjóafirði í gær og toppmæting, 18 manns. Það er bókað mál að ég fer aftur fyrr en síðar og spila þá alla nóttina fyrir þetta eðal fólk.
Nú er bara áframhaldandi trúbadorahátíð í kvöld þar sem ég kem fram ásamt mörgum snillingum. Bubbi Morthens hætti við að koma. Fékk í bakið greyið, það tekur á að eiga svona unga konu.
Posted at 01:39 pm by hlynurben
Monday, September 11, 2006
Jón Páll Sigmarsson

EKKERT MÁL
farið á hana!
Posted at 11:58 pm by hlynurben
Saturday, September 02, 2006
Átti afmæli á miðvikudaginn.
Fluttur af laugarveginum.
Kominn á Skagann til Systu og family í mánuð.
Búinn að fá íbúð í Safamýrinni frá og með Október.
Á leiðinni austur að spila með Dich Milch!
Big shout out til Árna og crewsins í Hafnafirði fyrir að leita uppi síðasta kassann af gulum strumpa ópal og gefa mér. SNILLAR!!!
ÉG VIL ÞAKKA SNILLINGUNUM Í CREW 52
FYRIR SNILLDAR ÁR!!!!!
Posted at 02:25 pm by hlynurben
Tuesday, August 22, 2006
Ég rakst á svolítið skemmtilegt á heimasíðu Belle & Sebastian í gær. Þar er söngvari hljómsveitarinnar að lýsa Íslands heimsókninni og kemur þar að mér og Berglindi. Hehe ég er trúbadorinn og hún er gellann sem bannaði honum að spila hehehehe. Lesið þetta:
"When we got back to the village, we went back to the hall where some live music was happening apparently. Some fellow was ploughing through a selection of pub favourites on his acoustic guitar. He was raucous and pretty amusing. Stevie shouted for the Stones, and he came back with Paint it Black like he had written it himself.
There was a piano at the back. I sat down and started accompanying the singer, just for my own amusement. No one could hear it over the sound of the speakers. Still, pretty sharpish, the bar lady came over and said "No", and practically brought the lid down on my fingers!
The singer fellow exalted and damned himself in equal measure as he played selections from the Kinks, the Lovin Spoonful, and the Pixies, but also that awful song with that women screeching "And I think to myself WHAT'S GOIN' ON?"
Hann fílar 4 non Blondes greinilega ekki jafnvel og Íslendingar. Skoðið meira á http://www.belleandsebastian.com
Posted at 01:45 pm by hlynurben
Monday, August 21, 2006
Gott fólk, ég fór í bíó í gær og ætlaði að kaupa ðe júsúal. Eina kók, einn þrist og gulann strumpa ópal en viti menn það var ekki til gulur. Bara grænn, blár og rauður. Ég spurði saklausa afgreiðslu stelpuna hvurslags nasista búlla þetta væri eiginlega. Hún horfði djúpt í augun á mér og útskýrði fyrir mér að það væri hætt að framleiða gulann strumpa ópal.
Veröld mín hrundi þarna nákvæmlega klukkan 22:15 að staðartíma.
GOTT FÓLK
ÞAÐ ER HÆTT AÐ FRAMLEIÐA GULANN STRUMPA ÓPAL!
Ég er að reyna að hafa upp á sænska fyrirtækinu sem framleiðir þetta nammi og þegar ég næ í rassgatið á þeim sem tók þessa hræðilegu ákvörðun þá munu hausar fjúka.
Knülla din mama din jävla bog!

Engar áhyggjur strumparnir mínir æðsti strumpur reddar þessu.
Posted at 10:54 am by hlynurben
Thursday, August 10, 2006
Fer rigningin ekki að klárast?
Neistaflugið var frábært. Það sem stóð algjörlega upp úr var samt Queen showið hjá BRJÁN þar sem menn fóru algjörlega á kostum. Bandið fær 12 bjóra af 10 mögulegum. Bjarnir Freyr, Jónsi og Felix stóðu sig eins og hetjur að fylla upp í rödd Freddie Mercury. Gæsabólur allann hringinn og til baka aftur.
Böllin voru góð, veðrið var frábært svona mest allann tímann og fólk var yfirmáta skemmtilegt þetta árið, hehe.
Ég sá um brekkusönginn þetta árið, einn og ómannaður, í þúsund vindstigum og raddlaus eftir helgar sprellið en fólk lét það ekki á sig fá og söng hástöfum með. Sannar enn og aftur að ef fólk ætlar að skemmta sér þá gerir það nákvæmlega það. Ég var meira að segja beðinn, svona óformlega, að vera aftur að ári. Hver veit kannski fæ ég Jón Zen lækni með mér og við verðum Hlynur Jónzen.
Ég veit, ég veit hræðilegur brandari hehehe.
Þetta er samt orðið svolítið spúkí hvaða tilfinningu ég fæ þegar ég næ að stjórna fólki. Ég fæ mikið kikk út úr því að skipa fólki að fara í alskonar asnalega leiki og það hlýðir mér bara hispurslaust. Ég hélt að það yrði ekki betra en að plata 100 manneskjur á Glaumbar í Höfuð, herðar, hné og tær, en mér skjátlaðist. Full brekka af fullorðnu fólki, c.a. 3000 manns, í þessum barnaleik bara af því að ég segi þeim að þau eigi að gera það er miklu meira kikk. I FELT LIKE GOD!
Jæja, Glaumbar í kvöld þar sem ég ætla að prófa nýja 80's píkupopp syrpuna mína og sjá hvernig hún legst í lýðinn.
Rokk og fokking ról!
Posted at 04:51 pm by hlynurben
Wednesday, August 02, 2006

Gísli í garðinum gaf mér Yamaha YP700 plötuspilara.
Stutt saga.
Útskýri seinna.
NEISTAFLUG!
Posted at 10:01 pm by hlynurben
Tuesday, August 01, 2006
Það er á hreinu að eina vitið er að skella sér á Neistaflugið um næstu helgi. Brján verður með Queen show á heimsmælikvarða, Páll Óskar, Sálin, Skímó og Í svörtum fötum verða á staðnum, besta veðrið á landinu og síðast en ekki síst þá ætla ég að grilla.
Verið memm
e.s. meira um málið hér http://www.neistaflug.is
Posted at 10:54 am by hlynurben
Sunday, July 30, 2006
Gerum einhverja vitleysu!
Enn ein snilldar helgin að baki. Á föstudaginn var ég ekkert hress og var að hugsa um að slútta áætlaðri ferð minni til Borgafjarðar að spila. Ég fékk mér smá lúr eftir vinnu og vaknaði fílefldur. Ég snaraði mér austur og sé sko alls ekki eftir því. Það var hörku stuð í Fjarðarborg, þar sem ég spilaði, og var ég mjög ánægður með fólkið sem mætti. Ekki ein leiðinleg sála í salnum. Þegar skotarnir í húsinu voru komnir upp á stóla og borð fann ég að ætlunarverki mínu var lokið. Margt var um manninn og hitti ég ekki bara fullt af fólki sem ég þekki heldur kynntist ég böns af nýju skemmtilegu fólki. Vil ég sérstaklega þakka skotunum, bretunum og íslendingunum sem voru í og með Belle & Sebastian og Emilíönu Torrini. Eðal fólk þar á ferð. Jarðbundið og með húmorinn á hreinu.
Laugardeginum var eytt í rólegheit, fótboltaáhorf og svo fór ég á einleikssýningu Halldóru sem heitir Úti situr andlit á glugga. Stúlkan fór á kostum og mæli ég eindregið með þessari sýningu sem fer fram í gamla pósthúsinu á Borgarfirði.
Tónleikarnir með Emilíönu og Belle & Sebastian voru frábærir.
Snilld frá A til Ö.
Það er ekkert meira sem ég get sagt annað en ég vorkenni þeim sem ekki komust.
Svo var tekið örlítið djamm og ýmislegt brallað sem er alveg efni í heila bók. (kannski geri ég einhvern tímann bók um heila)
Ég flaug svo aftur suður í dag og skellti mér út á lífið í kvöld þar sem strákarnir í Sigurrós höfðu ákveðið að halda tónleika fyrir mig úti í guðsgrænni náttúrunni. Þeir stóðu sig með stakri prýði og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Þeir voru auðvitað með strengjasveitina Aminu með sér og heljarinnar brass band sem þeir hafa nefnt Brassgat í bala.
Þakka ykkur öllum fyrir frábæra helgi og sjáumst á Neistaflugi!
E.S. Gerum einhverja vitleysu!
hehe
Posted at 11:34 pm by hlynurben
Thursday, July 27, 2006
Á örskotsstundu er þessi sveitabær orðinn stærri en Reykjavík. Magni á leiðinni að vinna Rockstarið og stærstu tónleikarnir haldnir í bræðslunni í Borgarfirðinum hehe. Hlakkar ekkert lítið til að sjá Emilíönu og Belle & Sebastian á laugardaginn. Ef þú verður komin(n) á staðinn á föstudag þá vil ég minna þig á að ég verð að spila í Fjarðarborg þá um kvöldið. Helvíti ánægður með Helga Val sem ætlar að skella sér austur í gleðina og taka helgina með trompi með mér.
Annars minni ég bara á að ég verð á Glaumbar í kvöld, samanber dagskránni undir GIGG hér til hliðar, og það er hægt að hlusta á þá hörmung á Flass 104,5 sem er undir ÚTVARP Á NETINU hér til hliðar. Það eina sem þú þarft er Windows media player eða annað sambærilegt apparat og þá getur þú hlustað á þessa vitleysu alla fimmtudaga milli 22:00 og minættis.
Kv. Major Tom
Posted at 05:13 pm by hlynurben